FAQ - Fjarðaferðir - Bátsferðir á Austurlandi
Til þess að aðstoða þig við að undirbúa ævintýrið ykkar á Austurlandi höfum við tekið saman algengustu spurningarnar sem við fáum um ferðir okkar, brottfarir, öryggi og önnur hagnýt atriði. Markmið okkar er að veita skýrar og gagnlegar upplýsingar svo þið getið verið örugg og vel undirbúin áður en þið kannið fallegu firðina með okkur.
Hver erum við?
Fjarðaferðir er ferðaþjónustufyrirtæki á Neskaupstað, sem býður upp á einstakar bátsferðir við Austfirði. Við sérhæfum okkur í minni hópaferðum á sjó, þar sem hægt er að upplifa leyndardóma Austurlands á einstakan hátt.
Hvernig ferðir bjóðið þið upp á?
Við bjóðum upp á einstakar RIB báta ferðir með leiðsögn, þar sem farþegum gefst tækifæri til að líta einstaka náttúru Austfjarða augum. Ferðirnar okkar einblína á dramatísk fjöll, falleg landslög og sjaldséða staði við Íslandsstrendur.
Hvaðan siglið þið?
Fjarðaferðir siglir frá Norðfjarðarhöfn, við flotbryggjuna á bak við Beituskúrinn veitingastað - frábær staður til að byrja einstaka ferð.
Hvernig báta notið þið?
Við notum harðbotna slöngubáta (RIB báta) sem eru sérhannaðir með öryggi og þægindi í huga, og eru því einstaklega hentugir fyrir siglingar í Íslenskum aðstæðum. Þeir eru hraðskreiðir og gera okkur því kleift að komast hraðar og nær stöðum sem ekki eru aðgengilegir annars.
Er leiðsögn í ferðinni?
Skipstjóri / háseti eru heimamenn og bjóða upp á einstaka frásögn. Í ferðinni færðu að heyra allt um Austfirði, strandlengjuna sem umlykur okkur, einstök kennileiti, fallegu náttúruna og stórbrotið dýralíf á svæðinu.
Þarf ég að bóka fyrirfram?
Við mælum eindregið með að bóka fyrirfram. Til þess að ferð geti talist staðfest þurfum við að minnsta kosti 2 farþega staðfesta, en getum einnig aðeins tekið allt að 12 farþega í einu. Þetta þýðir að með því að bóka fyrirfram, ertu að tryggja þér pláss í ákveðinni ferð.
Er ferðin háð veðri?
Eins og allar ferðir á Íslandi eru ferðirnar okkar háðar bæði veðri og vindum. Öryggi er alltaf í fyrirrúmi hjá Fjarðaferðum, svo ef aðstæður eru taldar óhagstæðar gæti ferðinni verið frestað eða aflýst með stuttum fyrirvara.
Hvaða búnaður er innifalinn?
Hjá okkur færðu afnot af bæði hlýjum galla og björgunarvesti svo þú getir notið ferðarinnar sem best, jafnvel á kaldari dögum
Hverju á ég að klæðast?
Við mælum með hlýjum og þægilegum fötum, sem og húfu og vettlingum ef kalt er úti. Jafnvel á sumrin er stundum kalt, þá sérstaklega á sjó. Ekki gleyma sólgleraugunum!
Hvað er innifalið í ferðinni?
Í miðanum þínum er eftirfarandi innifalið:
- 1 klst. RIB báta ferð frá Neskaupstaður
- Öryggisbúnaður (hlýr gallir og björgunarvesti)
- Persónuleg leiðsögn
- Drykkur á Beituskúrnum eftir ferðina
Hvað mun ég sjá í ferðinni?
Allar ferðirnar okkar eru örlítið frábrugðnar frá hvor annarri, en þær innihalda yfirleitt stórkostlegt landslag, bjargir og klettamyndanir, sjávarhella og afskekktar strandlengjur. Þú gætir líka séð einstakt dýralíf eins og sjófugla og stundum jafnvel hvali, allt eftir árstíð og aðstæðum.
Hversu löng er ferðin?
Tímasetning getur verið breytileg, en ferðin er yfirleitt 1 klst., að undanskildu stoppi við Beituskúrinn fyrir og eftir ferðina. Hver ferð er hönnuð til að veita þér góðan tíma á sjó, með tíma fyrir stopp á hinum ýmsum stöðum.
Er ferðin fjölskylduvæn?
Sjólag getur verið mismunandi og í háhraða RIB-bátsferðum er öryggið í fyrirrúmi. Lágmarksaldur 10 ár eða 145 cm á hæð í áætlunarferð. Þegar bókaðar eru sérferðir er mögulegt að taka yngri og minni farþega með um borð þar sem leið og hraði ferðarinnar verða aðlagaðar að þörfum hópsins. Hafðu samband við okkur beint til að fá frekari upplýsingar.
Er hægt að bóka sérferð?
Já, þú getur bókað sérferð hjá Fjarðaferðum! Sérferðir eru tilvaldar fyrir fjölskyldur, hópa, ljósmyndara, sérstök tilefni eða alla sem vilja sveigjanlegri upplifun á stórkostlegum Austfjörðum.
Get ég sérsniðið ferð eftir mínu höfði?
Algjörlega. Ef þú hefur ákveðinn stað, markmið með ljósmyndun eða áhuga á skoðunarferðum á Austurlandi, hafðu samband við okkur og við munum gera okkar besta til að sníða ferðina að þínum þörfum. Við getum jafnvel aðstoðað þig með tillögur að veitingastöðum og hótelum!
Ertu ennþá með spurningar?
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur fleiri spurningar!



